20 feb. 2020Íslenska landslið karla hefur leik í forkeppni að undankeppni HM 2023 í fyrsta landsliðsglugganum af þrem í forkeppninni í kvöld.

Í kvöld mætir íslenska liðið Kósovó ytra í höfuðborginni Pristina kl. 18:00 að íslenskum tíma.
Leikurinn verður sýndur beint á RÚV2 og er einnig streymt á Youtube-rás FIBA.

Um keppnina: 
Íslenska liðið leikur í einum af tveimur fjögurra liða riðlum í riðli með Slóvakíu, Kosovó og Lúxemborg. Efstu tvö liðin í lok þriðja gluggans í febrúar 2021, þegar liðin hafa leikið heima og að heiman, fara áfram í aðra umferð keppninnar þar sem efstu tvö liðin úr hinum riðlinum í þessari keppni auk átta liða sem ekki ná inn á lokamót EuroBasket 2021 mynda tvo nýja riðla. Þar verður leikið að nýju um laus sæti í undankeppni HM 2023.

Fyrsti leikur liðsins er á útivelli í kvöld í Pristhina í Kósovó en síðari leikurinn í þessum glugga er á sunnudaginn kemur í Laugardalshöllinni. Næstu leikir fara fram í nóvember 2020 en þá verða tveir heimaleikir á dagskránni og svo tveir útileikir í febrúar 2021 alltaf eru leiknir tveir leikir í hverjum glugga.

KKÍ hvetur alla körfuknattleiksaðdáendur að fjölmenna á leikinn á sunnudaginn og styðja vel við liðið og hvetja strákana áfram en það hefur margt oft sýnt sig að góður stuðningur gerir gæfumuninn!

Miðasala á leikinn 23. febrúar er á tix.is hérna.

Liðið í kvöld er þannig skipað:
# Nafn Staða Hæð F. ár Félag Landsleikir
4 Gunnar Ólafsson B 193 1993 Stjarnan 18
5 Ragnar Ágúst Nathanaelsson M 218 1991 Valur 45
7 Pétur Rúnar Birgisson  B 186 1996 Tindastóll 9
11 Tómas Þórður Hilmarsson  F 201 1995 Stjarnan 4
12 Kári Jónsson  B 192 1997 Haukar 10
13 Hörður Axel Vilhjálmsson (FL) B 196 1988 Keflavík 82
14 Kristinn Pálsson  B 197 1997 Njarðvík 13
17 Breki Gylfason  F 203 1997 Haukar 6
21 Ólafur Ólafsson  F 194 1991 Grindavík 36
23 Hjálmar Stefánsson  F 199 1996 Haukar 15
32 Tryggvi Snær Hlinason M 216 1997 Zaragoza, Spánn 37
66 Sigtryggur Arnar Björnsson B 180 1993 Grindavík 8

Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfarar: Baldur Þór Ragnarsson og Hjalti Þór Vilhjálmsson
Sjúkraþjálfari: Halldór Fannar Júlíusson


#korfubolti