25 sep. 2019
Hinn geðþekki fjölmiðlamaður Kjartan Atli Kjartansson dró í 32 liða úrslit í Geysisbikarkeppni KKÍ á skrifstofu KKÍ í dag. Að þessu sinni var dregið í þremur flokkum, 9. og 10. flokki drengja og drengjaflokki, en í 9. og 10. flokki stúlkna, stúlknaflokki og unglingaflokki karla hefst bikarkeppnin ekki fyrr en í 16 liða úrslitum. 

 

Búið er að draga í 32 liða úrslit Geysisbikarkeppni yngri flokka í þeim flokkum þar sem fjöldi þátttökuliða var meiri en 16. Leika skal á tímabilinu 10.-28. október.
 
Heimalið á að skila inn leiktíma fyrir kl. 15:00 föstudaginn 27. september. Vísað er í 45. grein reglugerðar um körfuknattleiksmót, en þar segir: “Félag sem fær heimaleik skal finna leiktíma í samráði við mótanefnd innan tveggja virkra daga frá bikardrætti. Verði félag ekki við þessu skal mótanefnd víxla heimavöllum og fær það þá lið sem seinna var dregið heimaleik og skal þá, eftir að mótanefnd hefur tilkynnt svo með sannanlegum hætti, finna leiktíma í samráði við mótanefnd innan þriggja virkra daga. Verði það félag sem seinna var dregið ekki við þessu er mótanefnd heimilt að finna hlutlausan völl fyrir leikinn á kostnað viðkomandi félaga auk 20.000 kr. sektar sem rennur til KKÍ.”
 
Bent er á að dómarakostnaður í öllum bikarleikjum yngri flokka deilist jafnt milli leikaðila.
 
 
9. flokkur drengja
10.-28. október 2019
 
ÍA – Breiðablik
Keflavík – Stjarnan b
KR b – Grindavík
ÍR – Valur
Þór Ak. – Njarðvík
 
Þessi lið sitja hjá:
Afturelding
Ármann
Fjölnir
Haukar
KR
Sindri
Snæfell/Skallagrímur
Stjarnan
Tindastóll
Vestri
Þór Þ./Hrunamenn
 
 
10. flokkkur drengja
10.-28. október 2019
 
Breiðablik – KR b
Ármann – Keflavík
Tindastóll – Þór Ak.
Ármann b – Stjarnan b
Haukar b – ÍR
 
Þessi lið sitja hjá:
Fjölnir
Grindavík
Haukar
Hrunamenn/Þór Þ.
ÍA
KR
Njarðvík
Skallagrímur
Snæfell
Stjarnan
Valur
 
 
Drengjaflokkur
10.-28. október 2019
 
Höttur – KR
Stjarnan – Grindavík
Njarðvík – Fjölnir
Keflavík – Fjölnir b
Valur – Vestri
Haukar – FSu
 
Þessi lið sitja hjá:
Breiðablik
Haukar b
ÍR
ÍR b
KR b
Njarðvík
Snæfell
Tindastóll
Valur b
Þór Ak.
 
 
Í 9. flokki stúlkna, 10. flokki stúlkna, stúlknaflokki og unglingaflokki karla voru þátttökulið 16 eða færri og því byrjar Geysisbikarinn í 16 liða úrslitum í þeim flokkum.