7 maí 2019Á laugardaginn varð KRÍslandsmeistari í Domino's deild karla árið 2019. KR og ÍR léku oddaleik í lokaeinvígi úrslitakeppninnar þar sem staðan var 2-2 og í oddaleiknum í DHL-höllinni hafði KR betur og lyfti íslandsmeistarabikarnum í leikslok á heimavelli sínum fyrir framan fullt hús.

Þetta er 18. íslandsmeistaratitill KR og einnig sá 6. í röð sem er einsdæmi í íslenskri körfuboltasögu.

Julian Boyd frá KR var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar í leikslok en hann var með 21.3 stig, 9.8 fráköst, 3.1 stoðsendingar og framlag upp á 23.5 að meðaltali í úrslitakeppninni. Birgir Örn Birgis afhenti svo einnig Böðvari Guðjónsyni, formanni KKD KR, ávísun frá Domino's upp á eina milljón krónur í verðlaunafé.

KKÍ óskar KR til hamingju með titilinn!

#korfubolti #dominosdeildin