29 jan. 2019

KKÍ fagnar 58 ára afmæli í dag 29. janúar, en sambandið var stofnað þennan dag árið 1961. 

Af því tilefni getur körfuboltaáhugafólk tekið þátt í skemmtilegum afmælisleik í dag á facebook-síðu KKÍ þar sem við ætlum að gefa tveim heppnum þátttakendum miða fyrir tvo á:

🏆 Geysisbikars-úrslitavikuna 🚗 (undanúrslit og úrslitaleiki mfl. og úrslit yngri flokka).
🇮🇸 Landsleik Íslands og Portúgals hjá landsliði karla í undankeppni EM 2021.
🎪 Allir leikirnir fara fram í Laugardalshöllinni, Geysisbikarinn 13.-17. febrúar og svo landsleikurinn 21. febrúar.

Það eina sem þátttakendur þurfa að gera er að merkja vin sem þeir vilja taka með sér á leikina á facebook-síðu KKÍ 
í dag og óska KKÍ til hamingju með daginn!

🙏🏻 Á morgun miðvikudag drögum við svo út þá heppnu!

#geysisbikarinn #korfubolti #TilHamingjuKKÍ