28 jan. 2019Samkvæmt reglugerð um félagskipti er opið fyrir félgaskipti leikmanna eldri en 20 ára til miðnættis þann 31. janúar en eftir það lokar fyrir öll félagskipti út tímabilið.

Það þýðir að engir leikmenn, íslenskir né erlendir, á öllum aldri, geta fengið félagaskipti eftir þann tíma.

Það sama gildir um venslasamninga þar sem þeir lúta reglum um félagaskipti. Undanþága er þó sú að þau leyfi/beiðnir sem borist hafa innan tímarammans til KKÍ og verða í vinnslu fyrir lokun gluggans eru afgreidd áfram, t.d. þegar beðið er eftir leikheimild erlendis frá.


Skila má gögnum alveg fram til lokunar gluggans á miðnætti 31. janúar en athygli skal vakin á því að leikmenn sem skila inn gögnum eftir kl. 16:00 á fimmtudeginum þann 31. janúar, hljóta fyrst leikheimild á föstudaginn, daginn eftir, 1. febrúar kl. 09:00 eftir að þau eru afgreidd.

Innlend félagsskipti

Skila þarf félagaskiptablöðum útfylltum með undirskrift leikmanns og forsvarsmanni þess félags sem gengið er úr á skrifstofu KKÍ eða senda í tölvupósti. Greiða þarf fyrir með millifærslu eða fá undirskrift nýja félagsins ef um skuldfærslu er að ræða í þeim tilfellum sem félag greiðir fyrir skiptin. Í þeim tilfellum þar sem leikmaður er eldri en 20 ára þarf félaga sem gengið er í einnig að vera skuldlaust við KKÍ fyrir lok miðnættis þann 31. janúar.

Leikheimildir erlendra leikmanna/Óskir um Letter of Clearance (LOC)
Skila þarf inn öllum gögnum sem KKÍ fer fram á auk þess að beiðni um LOC, sé þess er þörf, skal vera kominn í gang ásamt því að félag þarf að vera skuldlaust við KKÍ við lokun gluggans. LOC frá sambandi í öðru landi má þó berast eftir 31. janúar og hlýtur leikmaður þá leikheimild frá og með þeim degi þegar það berst að því undanskyldu að öll önnur gögn/greiðslur sem krafist er hafa borist skrifstofu KKÍ og hægt sé þar með að gefa út formlega leikheimild í kjölfarið.