3 jan. 2019

Fyrir jól gerði Domino’s körfuboltakvöld upp fyrri hluta tímabilsins í Domino’s deildum karla og kvenna í sérstökum jólaþætti í beinni útsendingu.

Í þættinum fyrir jól voru veitt verðlaun fyrir þá sem höfðu skarað fram úr í fyrri hluta tímabilsins að venju. Valin voru úrvalslið fyrri hlutans sem og einstaklingsverðlaun veitt í báðum deildum.

Leifur S. Garðarsson var valinn besti dómarinn og Grettismenn stuðningsmenn Tindastóls valdir bestu stuðningsmennirnir í Domino's deildunum

Eftirtalin verðlaun voru veitt:

Besti dómari fyrri hlutans: Leifur S. Garðarsson
Bestu stuðningsmennirnir: Grettismenn · Tindastóll

Domino´s deild karla:
Besti leikmaður fyrri hlutans: Urald King · Tindastóll
Besti varnarmaður fyrri hlutans: Gunnar Ólafsson · Keflavík
Besti ungi leikmaður fyrri hlutans: Hilmar Smári Henningsson · Haukar
Besti þjálfari fyrri hlutans: Israel Martin · Tindastóll

Geysis úrvalslið fyrri hlutans · Karlar: 
Brynjar Þór Björnsson · Tindastóll
Nikolas Tomsick · Þór Þorlákshöfn
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík
Urald King · Tindastóll
Mario Matasovic · Njarðvík

Domino´s deild kvenna:
Besti leikmaðurinn: Brittanny Dinkins · Keflavík
Besti varnarmaður fyrri hlutans: Angelika Kowalska · 
Snæfell
Besti ungi leikmaðurinn: Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur
Besti þjálfari fyrri hlutans: Benedikt Guðmundsson · KR

Geysis-úrvalsliðið fyrri hlutans · Konur:
Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík
Bríet Sif Hinriksdóttir · Stjarnan
Brittany Dinkins · Keflavík
Angelika Kowalska · Snæfell
Orla O'Reilly · KR

#korfubolti