1 sep. 2018Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarar hans hafa valið þá 12 leikmenn sem fara til Noregs á sunnudagsmorguninn en Íslands leikur gegn heimamönnum tvo vináttulandsleiki 2. og 3. september. Leikirnir gegn Norðmönnum eru hluti af 50 ára afmæli norska sambandsins og einnig liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir forkeppni EM 2021 sem leikin verður í landsliðsgluggum vetrarins. 

Í vetur verða stuttir landsliðsgluggar í nóvember og febrúar þar sem kalla þarf beint saman liðið fyrir þá leiki. Því hafa þjálfarar landsliðsins nýtt tækifærið núna til að skoða fleiri leikmenn sem fá tækifæri í tveim vináttulandsleikjum til að sýna sig en liðið æfir tvisvar í dag í Seljaskóla og heldur svo út í fyrramálið.

Leikirnir gegn Noregi verða í beinni á netinu á Youtube-rás norska sambandsins og í lifandi tölfræði einnig (nánari upplýsingar vera auglýstar fyrir leik): 

Landslið karla gegn Noregi 2. og 3. september.

# Leikmaður Staða Hæð F. ár Lið Landsleikir
4 Kristján Leifur Sverrisson M 199 1996 Haukar 0
5 Gunnar Ólafsson B 192 1993 Keflavík 5
6 Ragnar Nathanaelsson M 218 1991 Njarðvík 38
7 Pétur Rúnar Birgisson F 186 1996 Tindastóll 7
8 Hjálmar Stefánsson F 199 1996 Haukar 2
9 Danero Thomas F 194 1986 Tindastóll 0
10 Collin Pryor F 198 1990 Stjarnan 0
11 Tómas Hilmarsson F 201 1995 Stjarnan 2
12 Kristinn Pálsson B 197 1997 Njarðvík 5
13 Emil Barja B 193 1990 Haukar
0
14 Ólafur Ólafsson F 194 1990 Grindavík 24
15 Haukur Óskarsson B 194 1991 Haukar 0

Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfarar: Finnur Freyr Stefánsson and Baldur Þór Ragnarsson
Sjúkraþjálfari: Jóhannes Már Marteinsson

#korfubolti