26 apr. 2018KKÍ vill koma á framfæri tilkynningu frá KKD KR að vegna mikils áhuga á leik fjögur í úrslitaviðureign KR og Tindastóls um íslandsmeistaratitilinn 2018 í Domino's deildinni að þá þurfa handhafar KKÍ-aðgöngukorta sem ætla á leikinn á laugardaginn að nálgast aðgöngumiða fyrirfram gegn framvísun KKÍ-korts á skrifstofu KR á milli kl. 12-13 og 18-19
á morgun, föstudaginn 27. apríl.  KKÍ kort verða ekki tekin gild á leikdegi við hurð.

Í reglugerð KKÍ um aðgöngukort segir í 3. grein:

„Þegar um bikarúrslit, lokaleiki í úrslitakeppnum og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis á fyrirfram auglýstum tíma og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf á leikstað. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“

#korfubolti