6 apr. 2018U20 ára lið karla tekur þátt í evrópukeppni FIBA Europe í sumar 14.-22. júlí og nú hefur verið boðaður saman æfingahópurinn og telur hann 24 leikmenn og kemur hópurinn saman eftir miðjan maí til æfinga áður en endanlegt lið er valið. Liðið verður skipað leikmönnum sem fæddir eru 1998 og 1999.
Þjálfari liðsins er Arnar Guðjónsson og honum til aðstoðar eru Baldur Þór Ragnarsson og Israel Martin.
Liðið keppir í A-deild U20 liða í annað sinn í sögu KKÍ, og leikur í D-riðli með Ítalíu, Svíþjóð og Serbíu. Eftir riðlakeppnina verður svo leikið um sæti.
Eftirtaldir leikmenn skipa æfingahópinn:
Adam Eiður Ásgeirsson | Þór Þ. |
Andrés Ísak Hlynsson | KR |
Árni Elmar Hrafnsson | Breiðablik |
Arnór Hermansson | KR |
Bjarni Guðmann Jónsson | Skallagrímur |
Brynjar Karl Ævarsson | Breiðablik |
Egill Agnar Októson | Stjarnan |
Eyjólfur Ásberg Halldórsson | Skallagrímur |
Gabríel Sindri Möller | Njarðvík |
Gísli Þórarinn Hallsson | Höttur |
Hákon Hjálmarsson | ÍR |
Hlynur Logi Ingólfsson | Fjölnir |
Ingimar Aron Baldursson | KFÍ |
Ingvi Þór Guðmundsson | Grindavík |
Ísak Sigurðsson | Hamar |
Jón Arnór Sverrisson Hamar | Hamar |
Jón Páll Gunnarsson | Snæfell |
Magnús Breki Þórðarsson | Þór Þ. |
Nökkvi Már Nökkvason | Snæfell |
Orri Hilmarsson | KR |
Sigurkarl Róbert Jóhannesson | ÍR |
Snjólfur Marel Stefánsson | Njarðvík |
Sveinbjörn Jóhannesson | Breiðablik |
Tómas Atli Bjarkason | Svendborg, DK |
Yngvi Freyr Óskarsson | BK Amager, DK |
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson | Nebraska, USA |
#korfubolti