4 apr. 2018Fyrsti leikur undanúrslitanna í úrslitakeppni Domino's deildar karla fer fram í kvöld þegar ÍR og Tindastóll mætast í sínum fyrsta leik í Hertz-hellinum í Seljaskóla.
Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Lifandi tölfræði á sínum stað á kki.is.
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í lokaúrslitin í ár og leikur um íslandsmeistaratitilinn.
Hægt er að sjá allt um dagskrá leikja, úrslit og stöðu einvíga á kki.is/urslitakeppni
🍕 Domino's deild karla
➡️ 4-liða úrslit
🎪 Hertz-hellirinn, Seljaskóla
⏰ 19:15
➡️ Leikur 1
🏀 ÍR-TINDASTÓLL 📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport
🖥 LIVEstatt á kki.is
#korfubolti #dominos365