25 mar. 2018
Í kvöld mætast í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla Stjarnan og ÍR í fjórða leik sinnar viðureignar. Leikurinn hefst kl. 19:15 í Ásgarði í Garðabæ.

Leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport og lifandi tölfræði á kki.is.

Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir ÍR en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst áfram í undanúrslitin.
Sjáumst á vellinum!

#korfubolti