21 ágú. 2017

Drengjalandslið Íslands skipað leikmönnum 16 ára og yngri lauk leik á Evrópumótinu í Sófíu, Búlgaríu á laugardag með að bera sigurorð af heimamönnum 71-64 í leik um 13 sæti mótsins. Tölfræði leiksins og upptöku af honum má nálgast hér.

Á föstudag sigraði Ísland Makedóníu 70-66 eftir að hafa verið 11 stigum undir fyrir fjórða leikhluta. Tölfræði leiksins og upptaka er að finna hér.

Veigar Áki Hlynsson varð næst stigahæsti og næst framlagshæsti leikmaður mótsins, sem Grikkir sigruðu með yfirburðum, en jafnasti leikur þeirra á mótinu var gegn Íslandi.