3 júl. 2017

Í fyrramálið verður dregið í riðla vegna undankeppni Evrópumóts kvenna sem fer fram árið 2019. Mótið er haldið í Lettlandi og Serbíu.

Ísland er í þriðja styrkleikaflokki eða númer 22 á listanum. Góður árangur úr síðustu undankeppni gerir það að verkum að Ísland er jafn hátt á styrkleikalistanum en liðið hefur aldrei áður verið jafnt hátt á styrkleikalistanum í Evrópu.

Ásamt því að draga í undankeppni EM verður einnig dregið í Euroleague kvenna sem og EuroCup kvenna. Hefst drátturinn kl. 9:15 og verður byrjað að draga í evrópukeppnir félagsliða.

Ein þjóð verður dregin úr hverjum styrkleikaflokki en styrkleikaflokkarnir eru alls fjórir. Fjögur lið verða í hverjum riðli og leikið í þremur gluggum. Í nóvember 2017, febrúar 2018 og nóvember 2018.

Alls taka 16 þjóðir þátt í lokakeppninni og þar sem tvö sæti eru þegar bókuð fyrir gestgjafana eru 14 sæti laus. Sigurvegari hvers riðils fer áfram ásamt sex bestu sætunum í öðru sæti.

Fyrsti styrkleikaflokkur:
1. Spánn
2. Frakkland
3. Belgía
4. Grikkland
5. Tyrkland
6. Ítalía
7. Slóvakía
8. Rússland

Annar styrkleikaflokkur:
9. Úkraína
10. Ungverjaland
11. Tékkland
12. Slóvenía
13. Hvíta-Rússland
14. Svartfjallaland
15. Ísrael
16. Svíþjóð

Þriðji styrkleikaflokkur:
17. Króatía
18. Rúmenía
19. Bretland
20. Pólland
21. Holland
22. Ísland
23. Litháen
24. Þýskaland

Fjórði styrkleikaflokkur:
25. Finnland
26. Búlgaría
27. Bosnía
28. Portúgal
29. Eistland
30. Sviss
31. Albanía
32. Makedónía