28 jún. 2017

Það er óhætt að segja að það hafi hlaupið á snærið hjá Ísak Erni Kristinssyni dómara og íslenskum körfubolta þar sem NBA deildin hefur boðið Ísak að koma til Las Vegas í sumar og taka þátt í Global Camp fyrir efnilega dómara og jafnframt að dæma í NBA Summer League. Ísak átti afar gott tímabil á Íslandi og dæmdi m.a. bikarúrslitaleik karla og tvo leiki í úrslitaseríu KR og Grindavíkur.

Það er ljóst að þetta verður mikil reynsla fyrir Ísak að dæma á þessum stalli, þar sem ungir leikmenn í dyragætt NBA deildarinnar eru að spila, og fá leiðsögn frá dómaraforystu NBA deildarinnar en Ísak er á lista yfir framtíðar FIBA dómara Íslands. Það er ljóst að þessi reynsla mun að sjálfsögðu koma íslenskum körfubolta til góða enda hefur það aldrei gerst að NBA bjóði íslenskum dómara til sín á námskeið.

Ísak heldur út mánudaginn 3. júlí en námskeiðið hefst 5. júlí og stendur fram til 12. júlí.

Þeir sem eru áhugasamir um að fylgjast með Ísak geta skoðað leikjaplanið hér en 24 lið úr NBA deildinni munu leika í Las Vegas þessa daga.

Það mikill heiður fyrir íslenskan körfubolta að slíkt boð skuli berast og KKÍ óskar Ísak alls hins besta í Las Vegas.