20 jún. 2017

Í dag fer fram annar leikdagurinn af þrem á U20 móti karla sem haldið er hérna á landi ásamt liðum Finna, Svía og Ísraela. Leiknir verða tveir leikir á dag kl. 17 og kl. 20 og spilar Ísland alla dagana þrjá kl. 20:00.

Leikdagur 2 í dag · U20 mót karla · 19. júní · Mánudagur
17:00 - Leikur 1 · FIN-SWE
20:00 - Leikur 2 · ISL-ISR

Á Facebook síðu og Instagram síðu KKÍ er hægt að sjá myndir og myndskeið frá leik Íslands og Svíþjóðar sem fram fór í gær og Ísland vann 61:81.

Leikskrá mótsins er að finna hérna: LEIKSKRÁ

Miðasala á leikina í Höllinni verður á leikstað en miðaverð er 1.500 kr. fyrir hvern dag eða 3.000 kr. fyrir alla dagana og fer aðgöngueyrir upp í kostnað við mót sumarsins hjá strákunum.

KKÍ hvetur alla körfuboltaaðdáendur til að fjölmenna á leikina og styðja strákana í leikjunum framundan.

#korfubolti