8 maí 2017
KKÍ heldur þjálfaranámskeið sem er liður í fræðsluáætlun KKÍ en um er að ræða Þjálfari 1.a. og verður það haldið dagana 19.-21. maí.
 
Námskeiðið er 20 kennslustundir eða 13,5 klukkutímar. Áhersla er lögð á þjálfun minnibolta, byrjenda og barna 12 ára og yngri. Mikil áhersla er lögð á kennslu á helstu grunnþáttum eins og skotum, sendingum, fótavinnu, knattraki og á boltaæfingar. Áhersla er lögð á að kenna yngstu iðkendum grunnþætti í gegnum leiki. KKÍ þjálfari 1.a gildir sem 25% af lokaeinkunn á námskeiðinu. Þjálfarar sem hafa lokið 1.a eru með leyfi til að þjálfa minnibolta 9 ára og yngri.

Skráning er rafræn og hægt að skrá sig hér.

Verð á námskeiðið er 18.000 kr. 
 
Helgina 27.-28.maí verðu þjálfara námskeið 2.c.
 
Dagskrá (Birt með fyrirvara um breytingar á uppröðun. Tímasetningar hvers dags standa:)
 
Föstudagur 19. maí 2017 - Íþróttamiðstöðin Laugardal
17:00-17:40 Setning og kynning á þjálfaravef FIBA Europe · Snorri Örn Arnaldsson
17:40-18:00 Matur
18:00-19:20 Skipulag þjálfunar og kennslufræði (yngri en 12 ára) · Snorri Örn Arnaldsson
19:30-20:30 Minnibolti og þjálfun barna · Snorri Örn Arnaldsson
 
Laugardagur 20. maí - Kennaraháskólinn
09:00-10:20 Boltaæfingar, knattrak, leikir og fótavinna · Snorri Örn Arnaldsson
10:30-12:10 Upphaf sóknar, V-hlaup (e. V-cut), sendingar og sniðskot · Hjalti Vilhjálmsson
12:10-12:50 Matarhlé
12:50-14:10 Skottækni, fótavinna og leikir · Hjalti Vilhjálmsson
14:20-15:40 Vörn (Varnarstöður 1, 2, 3, 4 og 5) · Snorri Örn
 
Sunnudagur 21. ágúst – Íþróttahúsinu Ásvöllum Hafnafirði
11:00-12:30 Úrvalsbúðir KKÍ · Verklegt
12:30-13:30 Umræður
13:30-14:30 Verklegt próf (7,5%) og munnlegt próf (7,5%)
13:30-14:30 Matarhlé
14:30-15:00 Próf