30 apr. 2017Í kvöld er komið að oddaleik um íslandsmeistaratitilinn í Domino's deild karla, en þá verður leikinn hreinn úrslitaleikur um titilinn.
Staðan í einvígi liðanna er 2-2 og því stendur sigurvegari kvöldsins uppi sem Íslandsmeistari í körfuknattleik karla 2017. 

Leikurin fer fram í DHL-höllinni í Vesturbænum og hefst kl. 19:15. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Það er ljóst að það verða rúmlega 2.000 manns á leiknum og því eru áhorfendur hvattir til að mæta tímanlega til að fá miða og pláss og hvetur KKÍ áhorfendur til að fjölmenna saman í bíla á leikinn. Húsið opnar 16:00 og verður BBQ-borgarar KR á sínum stað fram að leik.

Ljóst er að það verður mikil spenna og dramatík í kvöld í einu stærsta leik ársins á þessu tímabili. Góða skemmtun!

#korfubolti