16 mar. 2017
Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál á fundi sínum í vikunni.
Mál nr. 39/2016-2017:
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Adam Smári Ólafsson, leikmaður Vestra, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vestra og Vals í 1. deild meistaraflokks karla, sem leikinn var 11. mars 2017.
Mál nr. 40/2016-2017:
Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Mirko Virijevic, sæta 1 leiks banni vegna háttsemi í leik Hattar og Breiðabliks í 1. deild meistaraflokks karla sem leikinn var 10. mars 2017.
Úrskurðirnir taka gildi að hádegi í dag fimmtudag.