1 mar. 2017

Landsliðsþjálfarar yngri landsliðanna og aðstoðarþjálfarar þeirra munu tilkynna leikmönnum sínum og foreldrum þeirra um valið á landsliðunum í dag milli kl. 16-18. Um er að ræða endanleg lið sem munu taka þátt í verkefnum sumarsins.

Það eru lið U15, U16 og U18 stúlkna og drengja sem búið er að velja og verða tilkynnt í dag. Eftir að leikmenn hafa verið látnir vita, bæði þeir sem voru valdir og þeir sem ekki voru valdir að þessu sinni, þá verða liðin öll birt í kjölfarið í kvöld á kki.is kl. 18:30.