24 feb. 2017

Leikur kvöldsins í Domino's deild karla er viðureign Njarðvíkur og KR í Ljónagryfjunni og verður Stöð 2 Sport á staðnum og sýnir beint frá leiknum kl. 20:00.

Strax á eftir kl. 22:00 verður svo Körfuboltakvöld á dagskránni þar sem farið verður yfir gang mála í Domino's deildunum.

Leikur kvöldsins:
🏀 Njarðvík-KR · Sýndur beint á Stöð 2 Sport

Lifandi tölfræði á kki.is.

Fylgist með á twitter og takið þátt í umræðunni undir #korfubolti og #dominos365