6 apr. 2010KR tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express-deild kvenna með sigri á Hamar í oddaleik í kvöld. Leikurinn var jafn og skemmtilegur og frábærlega leikinn af báðum liðum. Bæði lið sýndu frábæra takta og léku af talsverðri hörku. Staðan í hálfleik var 33:37 fyrir Hamar. KR-stúlkur komu ákveðnar til leiks í seinni hálfleik og náðu 19:2 spretti og sem vó þungt, en Hamar sótti á í restina og minnkaði muninn í tvö stig þegar skammt var eftir. KR stúlkur gerðu vel og lönduðu sigri og þar með titlinum, lokatölur 84:79. Þetta var þriðja árið í röð sem KR lék til úrslita en í bæði skiptin urðu þær að sætta sig við annað sætið. 9 ár eru frá því að KR varð síðast Íslandsmeistari kvenna. Hamarstúlkur voru í úrslitum í fyrsta sinn í ár. KKÍ óskar KR til hamingju með titilinn. Tölfræði leiksins: KR: Unnur Tara Jónsdóttir 27/7 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 16/6 fráköst/8 stoðsendingar, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 13/11 fráköst, Signý Hermannsdóttir 11/4 fráköst/11 varin skot, Margrét Kara Sturludóttir 8/10 fráköst, Jenny Pfeiffer-Finora 8, Helga Einarsdóttir 1. Hamar: Koren Schram 24/6 stolnir, Kristrún Sigurjónsdóttir 24/4 varin skot, Julia Demirer 18/11 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 6, Guðbjörg Sverrisdóttir 5/4 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 2/9 fráköst.