12 des. 2009Stjörnuleikur karla var frábær skemmtun í dag en það var lið Shell sem bar sigur úr býtum. Lokatölur leiksins voru 129-134. Það má með sanni segja að leikurinn hafi verið í járnum allan tímann. Reyndar náði lið Iceland Express um tíu stiga mun en það stóð yfir í aðeins nokkrar mínútur og í hálfleik var 59-58 fyrir IE-liðinu. Í seinni hálfleik var jafnt á öllum tölum og að lokum vann Shell 129-134. Andre Dabney, Hamri, var valinn maður leiksins en hann kom úr Shell-liðinu. Skoraði hann 7 stig og gaf 11 stoðsendingar og sýndi á köflum frábæra takta. Stigahæstur hjá Iceland Express-liðinu var Christopher Smith með 32 stig.
Iceland Express-liðið undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar
Shell-liðið undir stjórn Guðjóns Skúlasonar