6 maí 2005Núna rétt i þessu var að ljúka leik U-89 liðs drengja við Dani hér á NM i Stokkhólmi. Ísland vann leikinn með 68 stigum gegn 66 stigum Dana ( 20-18, 46-35, 60-48 68-66). Strákanir áttu i töluverðu basli með Danina en voru þó alltaf skrefinu á undan. Í byrjun 4.leikhluta var staðan orðin 67-50 og allt leit út fyrir öruggan sigur. En Danir tóku ansi vel við sér og skoruðu 16 stig i röd og breyttu stöðunni i 67-66. En sigur hafðist og hafa strákarnir unnið báða leiki sína hér á NM. Þeir eiga að leika aftur seinna í dag en þá eru það Norðmenn sem verða andstæðingarnir. Stig Íslands;Hjörtur Hrafn Einarsson 25, Þröstur Jóhannsson 16, Rúnar Ingi Erlingsson 12, Páll Fannar Helgason 8, Arnar Freyr Lárusson 4, Elías Kristjánsson 2 og Helgi Björn Einarsson 1.