6 maí 2005U-87 lið stúlkna tryggði sér sæti í úrslitaleik NM með sigri á Finnum áðan 99-95 (31-31, 50-53, 69-77, 99-95) Íslensku stelpurnar voru ekki að spila nógu góða vörn i leiknum og leiddu Finnar næstum allan leikinn. Þegar um 1.30 var eftir af leiknum þá komust stelpurnar yfir og héldu forystunni það sem eftir lifði leiks. Frábær sigur og stelpurnar fyrstar til að tryggja sér sæti í úrslitaleikjunum sem fram fara á sunnudaginn. Á morgun munu þær mæta Norðmönnum. Helena Sverrisdóttir náði þrefaldri tvennu 29 stig, 16 fráköst og 12 stoðsendingar. Stig Íslands skoruðu; Helena Sverrisdóttir 29, Bryndís Guðmundsdóttir 23 og 12 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 21, María Ben Erlingsdóttir 17, Sigrún Ámundadóttir 5, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 4.