26 apr. 2005Kínverski risinn Yao Ming, sem leikur með Houston Rockets í NBA-deildinni hefur verið tilnefndur til verkamannaverðlauna Kommúnistaflokksins í Kína. Tilnefningin hefur valdið deildum í Kína. Það eru yfirvöld í Shanghai sem tilnefna Ming og í umsögn þeirra segir að Ming hafi reynst frábær "sendiherra" fyrir Kína og vakið athygli um allan heim. Þá viti hvert mannsbarn í Kína hver hann er vegna frami hans í NBA-deildinni. Ekki eru allir á eitt sáttur um tilnefningu körfuknattleiksmannsins til þessara verðlauna og benda á að hann geti vart talsins verkamaður, enda milljónamæringur á bandaríska vísu þar sem hann getur vart talist á verkamannalaunum hjá Rockets. Verðlaun þessi voru fyrst veitt árið 1950 í þeim tilgangi að vera hvatning fyrir kínverska alþýðu að leggja sitt af mörkum í þágu ríkisins. Hingað til hafa það einkum verið námumenn, kennarar og starfsmenn í verksmiðjum sem tilnefndir hafa verið til verðlaunanna. Listinn yfir þá sem tilnefndir eru, er í fyrsta sinn gerður opinber í ár, en alls eru 2.977 manns tilnefndir til verðlaunanna, sem veitt verða þann 30. apríl í Beijing. Tilnefning um 30 sjálfstætt starfandi athafnamanna hefur einnig vakið deilur.