25 apr. 2005Í lokahófi KKÍ sem haldið var í Stapanum í Njarðvík sl. miðvikudag var Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ sæmdur gullmerki KKÍ. Árni hefur um langt skeið komið að körfuknattleik sem áhorfandi, stuðningsaðili og nú síðast sem bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Það var Ólafur Rafnsson formaður KKÍ sem afhenti Árna gullmerkið.