25 apr. 2005Nú um helgina fór fram fyrsta Actavis-mótið í minnibolta. Körfuknattleiksdeild Hauka stóð fyrir mótinu og fór það fram í Íþróttamiðstöðinni að Ásvöllum. Það íþróttahús hentar mjög vel fyrir svona mót. Leikið var á fimm góðum völlum og var nóg pláss fyrir leikmenn og þá sem voru að fylgjast með mótinu. Sjö félög (Haukar, Valur, Breiðablik, KR, Reynir, Kormákur og UMFG) sendu 61 lið á mótið. Keppendur voru um 400 á aldrinum 5-11 ára. Allir léku 3 leiki, boðið var upp á sundferð og í mótslok fengu allir verðlaunapening og frispídisk. Framkvæmd mótsins var góð og eiga Haukar þakkir skilið fyrir þetta framtak sitt.