20 apr. 2005Þá er komið að því. Lokahóf KKÍ verður haldið í kvöld í Stapanum í Njarðvík. Mikið verður um dýrðir eins og endranær, verðlaunaafhendingar, skemmtiatriði og dansleikur með hljómsveitinni Pöpum. Það verður laust fyrir miðnætti sem í ljós kemur hvaða leikmenn hafa verið valdir leikmenn ársins í Intersport-deildinni og 1. deild kvenna. Góða skemmtun!