15 apr. 2005Heimsliðið sigraði Evrópuúrvalið 102-106 í stjörnuleik FIBA Europe á Kýpur í gær. Jón Arnór Stefánsson var í byrjunarliði Evrópuúrvalsins og skoraði 10 stig á 21 mínútu í leiknum. Það var mikill heiður fyrir Jón Arnór að taka þátt í lþessum leik, hvað þá að vera í byrjunarliðinu. Þetta sýnir glöggt á hvaða stall Jón Arnór er kominn í alþjóðlegum körfuknattleik. Shammond Williams úr heimsliðinu var valinn maður leiksins, en Leikurinn var sýndur beint á Sýn með aðstoð DHL og Lýsingar og eiga þessir aðilar þakkir skyldar fyrir að gera landsmönnum kleift að sjá þennan viðburð. Leikurinn sjálfur var ágæt skemmtun, en heimsliðið hafði leikinn í hendi sér nær allan tímann. Íslenskir sjónvarpsáhorfendur lyftust þó aðeins upp úr sætum sínum á lokamínútunum þegar Jón Arnór minnkaði muninn í tvö stig 88-90 með þriggja stiga körfu, en lengra komust þeir ekki. Störnuleikurinn er gott framtak hjá FIBA Europe og vonandi halda menn þar á bæ áfram að sinni þróunar og markaðsvinnu. Skipulagning leiksins eða réttara sagt alls viðburðarins var þó nokkuð sérstök. Dagskráin var í lengra lagi og tímasetningar atriða voru vægast sagt óvenjulegar. Eins voru sjónvarpsmennirnir á Kýpur ekki alveg með á nótunum.