11 apr. 2005Sjóvarpsstöðin Sýn mun sýna Stjörnuleik FIBA Europe beint nk. fimmtudag. Samningaviðræður um þetta hafa staðið yfir undanfarna daga og nú er ljóst að af sýningu leiksins verður hér á landi. Það er að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni að íslenskir sjónvarpsáhorfendum gefist kostur á að sjá Jón Arnór Stefánsson í þessum leik Evrópuúrvalsins gegn heimsliðinu. Útsending frá leiknum hefst kl. 16:00 á fimmtudaginn.