9 mar. 2005Úrslitakeppni Interport-deildarinnar hefst á morgun, fimmtudag. Að því tilefni gekkst KKÍ fyrir blaðamannafundi í dag þar sem úrslitakeppnin var kynnt. Á fundinn mættu fulltrúar félaganna átta sem taka þátt í keppninni og kynntu áform sín og ástand liða sinna fyrir úrslitakeppnina. Þjálfurunum bar öllum saman um það að keppnin yrði skemmtileg og þeir hlökkuðu til að takast á við verkefnið. Flestir tefla fram sínum sterkasta leikmannahópi og a.m.k. eitt félag kynnir til leiks nýja erlenda leikmenn. Allir þjálfararnir voru sammála um að þeirra lið myndi gera góða hluti í úrslitakeppninni og gerði hiklaust tilkall til bikarsins stóra. mt: Nokkrir leikmenn brugðu á leik og tókust á um Íslandsbikarinn á fundinum.