6 mar. 2005Grindavík varð í dag bikarmeistari í 9. flokki kvenna annað árið í röð eftir 8 stiga sigur á Haukum í úrslitaleik, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002115/21150301.htm[v-]49-41[slod-], en Grindavík vann úrslitaleikinn í fyrra gegn Kormáki, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2004/00001899/18990401.htm[v-]54-20[slod-]. Íris Sverrisdóttir var valinn maður leiksins en fyrirliði Grindavíkurliðsins var með 18 stig, 7 stolna bolta og 5 stoðsendingar í úrslitaleiknum. Íris var einnig maður leiksins í úrslitaleiknum í fyrra. Alma Rut Garðarsdóttir skoraði 11 stig og stal 4 boltum fyrir Grindavíkurliðið, Jenný Ósk Óskarsdóttir var með 7 stig og 11 fráköst og Anna Þórunn Guðmundsdóttir var með 6 stig, 8 fráköst og 6 stolna bolta. Kristín Fjóla Reynisdóttir var stigahæst hjá Haukum með 16 stig, Guðrún Emilsdóttir skoraði 8 stig og tók 8 fráköst, Klara Guðmundsdóttir var með 7 stig, 13 fráköst og 4 stoðsendingar og þá var Ragna Margrét Brynjarsdóttir með 5 stig, 16 fráköst, 3 varin, 3 stolna og 3 stoðsendingar á aðeins 19 mínútum en hún fékk einnig 5 villur.