3 mar. 2005Hið árlega Samkaupsmót í Reykjanesbæ verður haldið um næstu helgi. Þetta mót er fyrir iðkendur á aldrinum 5-11 ára. Þetta mót er leikið í anda minniboltahugsjónarinnar, þ.e. allir fá að spila mikið og lítil áhersla er lögð á sigur. Í ljósi þess eru skoruð stig í leikjum ekki talin, enginn sigurvegari er í hverjum leik og enginn vinnur því mótið. Fyrir utan leikina þá er ýmislegt annað í boði fyrir krakkanna á mótinu, svo sem kvöldvaka, bíóferð, sund og pizzur og kók. Á mótinu í ár verður þáttökumetið frá því í fyrra slegið. Í ár verða leikmenn um 850 í 124 keppnisliði frá 15 félögum. Leikir mótsins verða um 300 og fara þeir fram á 10 völlum. Keflvíkingar eru með flest lið á mótinu eða 24, önnur lið sem ná að vera með fleiri en 10 lið eru Breiðablik, Fjölnir, UMFG og KR. Athygli vekur uppgangur í kvennakörfunni. Á mótinu verða 47 stúlkulið, auk nokkurra blandaðra liða. Keflavík, UMFG, Haukar og Njarðvík senda fleiri stelpulið á mótið en strákalið og kemur það kannski ekki á óvart þar sem þetta eru bestu kvennakörfuknattleikslið landsins.