2 mar. 2005Aleksandar Djordjevic, þekktasti körfuknattleiksmaður Serbíu og Svartfjallalands, hefur verið gerður að sendiherra hjá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir hönd heimalands síns. Þessi mikli snillingur sem leikið hefur með mörgum stórliðum í Evrópu á löngum ferli sínum, mun vinna að réttindamálum barna í heimalandi sínu, auk þess sem hann mun koma að einstaka verkefnum á sviði félags- og heilbrigðismála. Jdordjevic, sem orðinn er 37 ára gamall mun ljúka ferli sínum í sumar. Samningi hans við Scavolini lauk í síðustu viku og mun hann ljúka tímabilinu á Ítalíu með Milano. Á ferli sínum varð hann Evrópumeistari 1991, 1995 og 1997, heimsmeistari 1998 og sigurvegari í Eurolieague 1992 með félögum sínum í Partizan Belgrad. Þann 2. júlí í sumar mun Djordjevic gangast fyrir góðgerðarleik í Belgrad, þar sem félagar hans úr hinum ýmsu liðum í gegnum tíðina, munu etja kappi. Af [v+]http://www.fibaeurope.com/[v-]vef FIBA Europe[slod-].