1 mar. 2005Fjölmiðlaseminar, sem KKÍ heldur árlega fyrir fjölmiðlamenn, var haldið í 8. sinn sl. föstudagskvöld. Á fundinum var haldinn fyrirlestur um körfubolta í Evrópu og stöðu mála þar. Fjölmiðlamenn kepptu að vanda í spurningakeppni og í boltaþrautum. Keppnin var jöfn og spennandi, en Hrafnkell Kristjánsson sigraði eftir gífurlega harða keppni þar sem 3 næstu menn urðu jafnir í 3-4 sæti, þeir Samúel Örn Erlingsson (hitti m.a. úr skoti frá miðju), S. Elvar Þórólfsson og Arnar Björnsson. RÚV vann tvíkeppnina annað árið í röð. Spurningarnar sem fjölmiðlamennirnir fengu eru [v+]skjol/SPURNINGAKEPPNI FJOLMIDLAMANNA 2005.htm[v-]hér[slod-] fyrir áhugasama en svörin munu birtast innan tíðar. Við viljum koma þakklæti til Fjölnismanna sem hleyptu hópnum inn á æfingu hjá meistaraflokknum og lánuðu okkur Guðna Valentínusarson í eina þrautina! Hópbílar sáu að vanda um keyrslu milli staða, en hópurinn endaði síðan á Hard Rock Café þar sem boðið var upp á málsverð að hætti hússins.