31 jan. 2005Um helgina lauk hinu árlega KEA-skyrmóti Breiðabliks. Þetta var í áttunda sinn sem þetta mót hefur verið haldið. Mótið er aðallega hugsað fyrir leikmenn 10 ára og yngri en í þetta sinn var einnig leikið í 11 ára flokki. Mótið er í anda þeirrar hefðar sem myndast hefur á Íslandi um svona mót, þ.e. stig eru ekki talin, enginn sigrar í leikjunum og um leið í mótinu, leikreglur eru aðlagaðar að getu leikmanna hverju sinni og leikgleðin ræður ríkjum. Um 500 leikmenn tóku þátt í mótinu frá eftirfarandi félögum: Breiðablik, Keflavík, Njarðvík, Haukum, Snæfelli, Fjölni, Reyni, Ármann/Þrótti og KR. Nokkur félög sendu um og yfir 10 lið á mótið og greinilega mikill uppgangur í minniboltastarfi þeirra félaga. Sérstaklega gaman var að sjá fjölda leikmanna í byrjandaflokknum (5-7 ára) á mótinu og hvaða tökum þessir leikmenn hafa náð á íþróttinni. Á mótinu mátti sjá mörg vel þjálfuð lið og marga skemmtilega leikmenn. Mikla athygli vakti ein 9 ára stelpa frá Njarðvík sem æft hefur körfu í fimm ár. Framkvæmd og skipulagning mótsins tókst mjög vel og eiga Blikar þakkir skilið fyrir það. Ein aðalkosturinn við þetta mót er fjöldi leikja á stuttum tíma, stórir vellir, góð aðstaða fyrir áhorfendur og stutt verðlaunaafhending. Blikar settu upp [v+]http://asp.internet.is/blikar/kea.htm[v-]sérstaka heimasíðu[slod-] fyrir mótið og mátti þar fylgjast með mótinu í beinni útsendingu. Á síðunni má einnig sjá myndir frá mótinu og öllum þátttökuliðunum. Næsta mót í þessari mótröð fyrir yngri leikmennina í minniboltanum er Samkaupsmótið í Reykjanesbæ. Það verður haldið helgina 5.-6. mars. UMFN og Keflavík er byrjuð á því að kynna þetta mót. Þátttökutilkynningum skal skilað inn fyrir 25. febrúar næstkomandi.