26 jan. 2005Aganefnd KKÍ dæmdi tvo þjálfara í leikbann á fundi sínum í gær. Báðir hlutu þeir eins leiks bann. Jón Arnar Ingvarsson þjálfari 1. deildarliðs Breiðabliks var kærður til aganefndar eftir undanúrslitaleik Breiðabliks og UMFN í bikarkeppni KKÍ & lýsingar sl. sunnudagskvöld. Snorra Erni Arnaldssyni þjálfara drengjaflokks Fjölnis var vísað úr húsi í leik Þórs Ak. og Fjölnis fyrir norðan á sunnudag. Bæði leikbönnin taka gildi frá og með hádegi nk. föstudag.