20 jan. 2005Dynamo St. Petersburg er eina taplausa liðið í FIBA Europe Leage eftir sigur á úkraínska liðinu Khimik í gærkvöldi, 73-63. Jón Arnór skoraði 14 stig fyrir Dynamo. Gestirnir frá Rússlandi réðu ferðinni í fyrsta leikhluta og leiddu 22-14 að honum loknum. Khimik náðu að rétta úr kútnum fyrir hálfleik og munurinn aðeins tvö stig fyrir seinni hálfleikinn, 35-33. Dynamomenn byrjuðu þriðja leikhluta af krafti, með því að skora 10 stig gegn einu stigi heimamanna. Þeir héldu forskotinu út leikinn og unnu sinn 11. sigurleik í röð í Evrópukeppninni. Jón Arnór var í byrjunarliðinu að vanda og lék í 31 mínútu. Hann skoraði 14 stig, tók fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu. Hittnin hjá honum var góð í tveggja stiga skotum (2/4) og enn betri í þriggja stiga skotum (3/4), en hann hitti hins vegar ekki eins vel úr vítum (1/4). Af [v+]http://www.kr.is/karfa[v-]vef KR[slod-].