19 jan. 2005Á morgun fimmtudag verður stórleikur í íslenskum körfubolta þegar Keflavík tekur á móti Benetton Olympic Fribourg í síðari leik liðanna í úrslitakeppni mið- og vesturdeildar bikarkeppni Evrópu. Keflavíkingar töpuðu fyrri leiknum í Sviss sl. fimmtudag 103-95 og nægir því 9 stiga sigur í lieknum á morgun til að komast áfram í 8-liða úrslit keppninnar. Lið Benetton er óárennilegt, fjöldi erlendra leikmanna prýðir liðið og aðeins einn Svisslendingur var á skýrslu í fyrri leiknum. Sá heitir Patric Ceresa og skoraði hann 4 stig á 28 mínútum í leiknum í Sviss. Stigahæstur var hins vegar Bandaríkjamaðurinn Delmonte Madison með 25 stig. Möguleikar Keflvíkinga á að komast áfram verða að teljast góðir, en eins og menn vita sækir ekkert lið gullið í greipar þeirra í Sláturhúsið við Sunnubraut. Fari svo að Keflavík komist áfram verður mótanefnd KKÍ á færa síðustu umferðina í Intersport-deildinni, sem vera átti 3. mars, sem og upphaf úrslitakeppninnar. Leikurinn hefst kl. 20:30 annað kvöld í Keflavík. KKÍ hvetur alla körfboltaáhugamenn til að fjölmenna og upplifa körfubolta eins og hann gerist hvað bestur í Evrópu. mt: Nick Bradford hefur farið á kostum í leikjum Keflavíkur í Evrópukeppninni í vetur. (VF-mynd af vef FIBA-Europe)