16 des. 2004Miðvikudaginn 15. desember, mætti Lukkudýr íþróttafélagsins Skallagríms úr Borgarnesi, bolabíturinn Skallinn, í heimsókn á Barnaspítala Hringsins. Þar skemmti hann börnunum sem þar lágu og gaf þeim stórt plakat með mynd af sjálfum sér á körfuboltavelli þeirra Skallanna, að sjálfsögðu áritað og í boði KKD.Skallagríms og bókina "Jólastríðið" eftir skapara sinn, Jóhann Waage. Var vel látið af heimsókn Skallans og var hann boðinn í heimsókn hvenær sem er, honum var meira að segja boðin staða sem lukkudýr Spítalans, en Skallagrímshjartað var of stolt og afþakkaði hann því gott boð.