2 des. 2004Í kvöld, fimmtudagskvöld, fer fram heil umferð í Intersport-deildinni. UMFN er efst í deildinni fyrir leiki kvöldsins sem er sú 9. í röðinni í vetur. Í Keflavík taka heimamenn á móti Skallagrím og Reykjavíkurliðin ÍR og KR eigast við í Seljaskóla. Á Sauðárkróki mætast Tindastóll og UMFN og Haukar taka á móti Hamri/selfossi á Ásvöllum. Þá fá Fjölnismenn Snæfell í heimsókn í Grafarvoginn og á Ísafirði leika KFÍ og UMFG. Leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15.