29 nóv. 2004Á stjórnarfundi FIBA Europe um helgina var staðsetning Evrópumóta næstu ára ákveðin. Úrslit Evrópumóts karla árið 2007 verða á Spáni og úrslit Evrópumóts kvenna 2007 verða á Ítalíu. Þá var einnig ákveðið á fundinum að úrslitakeppni Evrópumóts karla árið 2009 verði í Póllandi og árið 2011 í Litháen. Á fundinum var staðsetning yngri landsliða mótanna næsta sumar einnig ákveðið. Þau mót sem Ísland tekur þátt í verða sem hér segir: U20 karla B-deild - Varna, Búlgaríu. U18 karla B-deild - Kosice, Slóvakíu. U18 kvenna B-deild - Brcko, Bosníu og Herzegóvínu. U16 karla A-deild - Spáni U16 kvenna B-deild - Tallinn, Eistlandi. Næsta úrslitakeppni Evrópumóts karla verður haldin í Serbíu og Svartfjallalandi 15.-25. september á næsta ári. Dregið verður í riðla í keppnina í Belgrad þann 15. janúar nk. Úrslitakeppni Evrópumóts kvenna 2005 verður haldin í Tyrklandi 2.-11. september. Dregið verður í riðla í Istanbúl þann 28. janúar nk. Nánar um Evrópumótin á [v+]http://www.fibaeurope.com[v-]vef FIBA Europe[slod-].