27 okt. 2004Fannar Helgason leikmaður ÍR og Ron Robinson leikmaður Tindastóls í Intersport-deildinni voru báðir dæmdir í tveggja leikja bann á fundi aganefndar KKÍ í gær. Þrír aðrir leikmenn sættu refsingu að hálfu nefndarinnar og voru þeir allir dæmdir eins leiks bann. Í kjölfar slagsmála í leik ÍR og Tindastóls sl. sunnudagkvöld voru þeir Fannar og Robinson kærðir til aganefndar fyrir sérlega grófan leik eða ofbeldi. Báðir voru dæmdir í tveggja leikja bann samkvæmt B-lið 4. greinar reglugerðar aganefndar. Þá var tekin fyrir kæra á hendur I. Magna Hafsteinssyni leikmanni Snæfells í Intersport-deildinni vegna atburða sem áttu sér stað í leik Hamars/Selfoss og Snæfells sl. fimmtudag. Kært var fyrir ógnun eða árás á dómara. Aganefnd dæmdi Magna í eins leiks bann samkvæmt A-lið 4. greinar reglugerðar aganefndar. Einnig var tekin fyrir kæra á hendur Kerbrell Brown leikmanni Skallagríms í Intersport deildinni vegna atburða sem áttu sér stað í leik Skallagríms og UMFG sl. fimmtudag. Kært var fyrir óprúðmannlega framkomu. Aganefnd dæmdi Brown í eins leiks bann samkvæmt A-lið 4. greinar. Að lokum var tekin fyrir kæra á hendur Björgvini Karli Gunnarssyni leikmanni Hattar í 1. deild vegna atburða sem áttu sér stað í leik Þórs Ak. og Hattar sl. föstudag. Kært var fyrir óprúðmannlega framkomu. Aganefnd dæmdi Björgvin í eins leiks bann samkvæmt A-lið 4. greinar. Bönnin taka öll gildi frá og með hádegi nk. föstudag, 29. október.