26 okt. 2004Á sunnudaginn kemur heldur körfuknattleiksdeild Breiðabliks ball fyrir iðkendur og félaga í Breiðabliki í tilefni af hrekkjavöku (Halloween) Ballið verður haldið í veitingasal Smárans og verður tvískipt skemmtun í boði. Frá 18:00 - 19:30 verða yngri krakkarnir í partýgírnum. 7. bekkur og yngri mæta þá á staðinn í sýnum fínustu grímubúningum og hakka í sig pizzur og sælgæti við undirspil tónlistar. Frá 20:00 - 00:00 verða eldri krakkarnir komnir í djammið. 8. bekkur og upp úr. Þar spilar DJ Dagur í risa hljóðkerfi ÍTK og auðvitað verður góðgæti á boðstólum. Valinn veður besti grímubúningurinn og sá frumlegasti hjá báðum aldurshópunum.