20 okt. 2004Belgíski landsliðsmaðurinn Axel Hervelle hefur gert tveggja ára samning við Real Madrid á Spáni. Hervelle lék með belgíska landsliðinu hér á landi í sumar, en sló í gegn í leik Belga gegn Þjóðverjum í Evrópukeppni landsliða í síðasta mánuði. Hervelle skoraði 24 stig og tók 11 fráköst í leiknum gegn Þjóðverjum og vakti þar með athygli spænska liðsins. Axel Hervelle lék með Belgum gegn Íslendingum í sumar og átti góða leiki. Hann skoraði/frákastaði 6/7 í fyrsta leiknum, 14/12 í öðrum leiknum og 11/15 í þriðja leiknum. Annar Belgi var fyrir hjá Madridingum, gamla kempan Eric Struelens, en hann hefur fært sig um set til Girona.