21 sep. 2004Kvennalið Keflavíkur í körfubolta gerði góða ferð til Kaupmannahafnar um helgina þar sem liðið endaði í 2. sæti á æfingamóti og vann alls fjóra af fimm leikjum sínum í ferðinni. Keflavík tapaði fyrir dönsku meisturunum Hörsholm, 42-71, en þetta er eitt allra sterkasta félagslið landsins með þrjá bestu leikmenn Danmerkur. Hinir leikirnir unnust, tveir gegn danska liðinu Sisu og síðan vann Keflavík sænska liðið Lobas. Þá lék liðið að nýju við Hörsholm sem spilaði reyndar þann leik án sinna sterkustu leikmanna. Af Vísi.is. [v+]http://www.visir.is/?PageID=91&NewsID=14079[v-]Öll fréttin[slod-].