15 ágú. 2004Núna rétt í þessu var að ljúka lokaleik Íslands í B-deild EM. Það voru Hollendingar sem voru síðustu andstæðingar okkar í dag. Strákanir okkar töpðuðu leiknum með 72stigum gegn 78stigum Hollendinga. Þar sem leiknum var að ljúka koma tölur og fleira seinna í dag. Það er því ljóst að Ísland vann 7leiki en tapaði 2 á mótinu eins og Makedónía en þar sem Ísland vann Makedóníu þá sigarar Ísland riðilinn og kemst upp í A-deild Evrópukeppninnar á næsta ári. Fyrir þenn leik við Hollendinga var ljóst að Ísland var búið að vinna riðilinn þar sem Makedónía tapaði fyrir Finnum. Það varð því spennufall hjá strákunum okkar sem léku því miður ekki nógu vel í lokaleiknum. En þrátt fyrir þetta tap er árangur ÍSLANDS í þessu móti hreint út sagt stórkostlegur og sæti í A-deild að ári staðreynd. Eins og áður hefur komið fram er þetta stór dagur í íslenskum körfubolta Þjálfari strákanna er Benedikt Guðmundsson Eftirtaldir leikmenn eru í Brighton á Englandi: Nafn Félag Brynjar Þór Björnsson KR Hafþór Björnsson Breiðablik Böðvar Björnsson ÍA Hjörtur H. Einarsson Njarðvík Þórir Guðmundsson KFÍ Gústaf Gústafsson Valur Hörður Hreiðarsson Valur Emil Þór Jóhannesson Fjölnir Þröstur Leó Jóhannsson Keflavík Páll H. Kristinsson Keflavík Sigurður Þorsteinsson KFÍ Hörður Axel Vilhjálmsson Fjölnir Fararstjóri í ferðinni er Björn Björgvinsson FIBA dómari frá Íslandi í þessari ferð er Sigmundur Már Herbertsson Ísland spilar því í A-deildinni á næsta ári ásamt eftirtöldum þjóðum; Frakkland sem eru Evrópumeistarar, Rússland,Slóvenía, Pólland, Ísrael, Serbía&Svartfjallaland, Ítalía, Litháen, Georgía, Tyrkland, Króatíu, Lettland, Spánn, Grikkland og Úkraníu sem vann hinn riðilinn í B-deildinni.