10 ágú. 2004Drengjalandsliðið skipað leikmönnum 16 ára og yngri vann sigur á Írum 63-51 í B-deild Evrópukeppni landsliða í Brighton á Englandi í gær. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 15-10 fyrir Ísland, staðan var 37-21 í hálfleik og 49-39 eftir þriðja leikhluta. Ísland er í öðru sæti í A-riðli B-deildarinnar með 7 stig eins og England, en Makedónía er efst með 8 stig. Ísland leikur gegn Finnlandi í dag. Brynjar Þór Björnsson var stigahæstur í íslenska liðinu í leiknum með með 21 stig og 9 fráköst, Emil Jóhannsson 13 stig, Hörður Axel Vilhjálmsson skoarði 10 stig og 10 fráköst, Hjörtur Einarsson 8 stig og 8 fráköst, Þröstur Jóhannsson 7 stig og 9 fráköst og Sigurður Þorsteinsson með 4 sdtig og 3 fráköst. mt: Hörður Axel Vilhjálmsson úr Fjölni var með 10 stig og 10 fráköst gegn Írum.