10 ágú. 2004Kvennalandsliðið hélt í morgun áleiðis til Svíþjóðar þar sem liðið mun taka þátt í Norðurlandamóti í vikunni. Fyrsti leikur íslenska liðsins verður morgun gegn Norðmönnum. Íslenska liðið er þannig skipað: Númer, nafn, aldur, hæð, staða, félag. 4 Signý Hermannsdóttir 25 182 C IS 5 Helena Sverrisdóttir 16 182 G/F Haukar 6 Alda Leif Jónsdóttir 25 178 G ÍS 8 Erla Reynisdóttir 26 165 G Grindavík 9 Svana Bjarnadóttir 26 180 F ÍS 10 Hildur Sigurðardóttir 23 170 G Jämtland 11 Birna Valgarðsdóttir 28 180 F Keflavík 12 Erla Þorsteinsdóttir 26 183 C Grindavik 13 Svandís Sigurðardóttir 22 177 F ÍS 14 María Ben Erlingsdóttir 16 181 C Keflavík 15 Sólveig Gunnlaugsdóttir 23 175 F Grindavík Á fimmtudag mætir íslenska liðið Svíum, á föstudag verður leikið gegn Dönum og á laugardag verða Finnar mótherjar íslenska liðsins. Móttinu líkur á sunnudag, en þann dag á íslenska liðið frí. Þjálfari liðsins er Ívar Ásgrímsson og honum til aðstoðar er Henning Henningsson, sem kemur til móts við liðið beint frá Eistlandi þar sem hann stýrði U-16 ára liðinu í mikilli sigurför. Með Henning koma þær Helena Sverrisdóttir og María Ben Erlingsdóttir til liðs við A-landsliðið. U-16 ára landsliðið hafnaði sem kunngt er í öðru sæti í sínum riðli B-deildar Evrópumótsins og voru hársbreidd frá því að tryggja Íslandi sæti í A-deildinni. Dómari fyrir Íslands hönd í mótinu verður Rögnvaldur Hreiðarsson, sjúkraþjálfari íslenska liðsins er Haraldur Sæmundsson og fararstjóri íslenska hópsins er Hannes Hjálmarsson framkvæmdstjóri KKÍ. mt: Birna Valgarðsdóttir er leikjahæst í íslenska liðinu með 53 landsleiki.