8 ágú. 2004Ísland og Pólland leik þriðja leik sinn af þremur í Keflavík í kvöld klukkan 20. Það má með sanni segja að Suðurnesin séu mekka körfuboltans á Íslandi enda nálægt Keflavíkurflugvelli þar sem hermenn komu með íþróttina með sér frá Bandaríkjunum. Keflavík hóf þátttöku í Íslandsmóti upp úr 1970 og komu fyrst upp í Úrvalsdeild 1982 og komust þeir fljótlega í toppbaráttuna og urðu Íslandsmeistarar fyrst 1989 og hafa orðið meistarar 7 sinnum. Formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur er Hermann Helgason. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar er Árni Sigfússon og framkvæmdastjóri Íþrótta og tómstundaráðs bæjarins er Stefán Bjarkason fyrrverandi leikmaður Njarðvíkur.